Tenglar

Innskráningar kubbur

Halló

11. febrúar 2008 klukkan 07:50
Hae hae,
thad var planid á sídasta ári ad reyna ad hafa annad ríjúníón. Svo kom desember og allir voru í prófum og ad vinna. Thannig ad thad gafst enginn tími.
Ég bý núna í Kambódíu, svo ekki get ég planad neitt. Nema ad thid viljid oll koma hingad. Ég er samt ekki med gestaherbergi, en sófa.


Bestu kvedjur,
Erna formadur.

p.s.
http://euis.blog.is/blog/euis/ 
Útskriftarhópur FÁ Haust 2006

Góðann daginn

04. desember 2007 klukkan 18:26
Já ég held að það séu ekki margir sem leggja leið sína á þessa síðu, en mig langar til að reyna.

Ég vona að síðastliðið ár hafi verið ykkur gott, mitt ár hefur verið vægast sagt frábært enda á bakpokaferðalagi um Asíu! Mér finnst ótrúlegt að hugsa til þess að það sé að koma meira en ár síðan að við dimmiteruðum! Og að það sé næstum því komið ár frá því að við fengum stúdentspróf.

Hvernig lýst ykkur annars á ríjúníon?? Það sem var haldið í sumar var ansi skemmtilegt og vel heppnað þrátt fyrir dræma mætingu.

Endilega látið það ganga að síðan okkar sé endurlífguðHlæjandi

Hlakka til að sjá sem flest ykkar í netheimi og barheimi.

Kveðja
Erna formaður

Útskriftarhópur FÁ Haust 2006

INDLAND

29. desember 2006 klukkan 21:07

hallo eg er a Indlandi, uppi i Himalaya fjollunum. Thetta er frekar skritid allt saman, thad er erfitt ad atta sig a thvi ad fyrir rumri viku vorum vid ad utskrifast...Gledilegar hatidar kvedjur hedan, aramotunum verdur varid a Ganga anni i godum gir ad syngja heilaga tonlist

Kv.
Erna asiufari

p.s.
www.xanga.com/asiur

Útskriftarhópur FÁ Haust 2006

Nú nálgast jólin.

22. desember 2006 klukkan 20:34
Sælt veri fólkið.

Til hamingju með þann merka áfanga sem mörg okkar voru að ná fyrir um 2 dögum síðan, stúdentsprófið. Svalur

Núna nálgast jólin og vill ég óska öllum gleðilegrar hátíðar og vona að sem flestir éti á sig gat yfir jólin.

Við sjáumst vonandi síðar.

kv. Gísli Steinn
Útskriftarhópur FÁ Haust 2006

Þá styttist í stúdent.

18. desember 2006 klukkan 22:10
Sæl veriði öll sömul,

nú er stúdentinn á næsta leiti! Við verðum orðin stúdent um þetta leiti ekki á morgunn heldur hinn, trúiði því? 

Síðasta föstudag var haldið karíókí kvöld sem heppnaðist bara skrambi vel, þó ég segi sjálf frá. Bjórinn flæddi út úr eyrunum á okkur drykkjufólkinu og nokkur einstaklega vel valin og fölsk lög voru tekin. Síðan var haldið í  miðbæ Reykjavíkurborgar þar sem meiri bjór flæddi og nóttin dönsuð í burtu. 

Mig langar til að þakka öllum fyrir frábæra önn, án ykkar hefði önnin ekki orðið svona frábær. Ég hlakka til að sjá ykkur öll í komandi framtíð og horfa á myndbandið aftur eftir 10 ár.

Kær kveðja

Erna Eiríksdóttir
Útskriftarhópur FÁ Haust 2006

Karíókí, öl á ölveri

12. desember 2006 klukkan 18:25

Heil og sæl öll,

fyrst vil ég óska öllum til hamingju með próflok.
Á föstudaginn 15. desember klukkan 22:00 ætlum við öll að hittast á Ölveri drekka bjór og syngja nokkur vel valin lög. Það verður glaumur og gleði. Ég vil sjá sem flesta.
Bjórinn er á 600kr,- rétt eins og á öðrum klassastöðum, (eigandi er eitthvað ragur við tilboð) svo er auðvitað hægt að fá kók, gin og tónik vatn og svona mætti lengi telja. Engu að síður verða allir að mæta. ALLIR

Sjáumst hress með öl á Ölveri

Kær kveðja

Erna Eiríksdóttir
Útskriftarhópur FÁ Haust 2006

Skilaboð frá Eyjólfi.

05. desember 2006 klukkan 22:06
Jæja hér eru skilaboð frá Eyjólfi, hann sendi þetta líka í e-mail.

kv. Gísli Steinn


Sæl öll

Vonandi gegnur ykkur allt í haginn í prófunum. Gísli Steinn var að biðja um uppl. vegna brautskráningar.

Æfing fyrir brautskráningu verður 19. des. kl. 12:30. Brautskráning er 20. des kl. 13:00. Ég hvet ykkur að mæta til leiks kl. 12:30. Ykkur er velkomið að taka með ykkur 5 - 10 manns. Vinsamlega takið ekki með ykkur ungabörn, ekki vegna þess að við séum á móti börnum heldur vegna þess að þau geta truflað athöfnina með gráti.

Athugið að myndin kostar kr. 3000.- Einnig eigið þið að hafa með ykkur hvíta nelikku með nælu og bera í barmi ykkar.

meira síðar bestu kveðjur eb

Útskriftarhópur FÁ Haust 2006

Being Happy!

02. desember 2006 klukkan 23:53
Jæja nokkrir einstaklingar eiga eftir að borga bækurnar eða skila.

Ég vill fá þær fyrir miðvikudag. Þá verður skilað bókunum, eftir það þá verður tekið 1.500 kr í stað 1.000 kr á hverja bók og ef þeim verður ekki skilað fyrir miðvikudag þá verðið þið að kaupa þær. Eftir föstudag verður tekið 2.000 kr á hverja bók ef þið verðið ekki búin að borga.

ÉG get ekki verið að standa í því yfir prófin að vera að eltast við þessar bækur og Bjössi þarf að fá greiðslu fyrir þessum bókum.

KOMA SVO.

Síminn minn er 6169050 og getiði hringt í það til að hitta mig.

kv. Gísli Steinn
Útskriftarhópur FÁ Haust 2006

Myndir!

02. desember 2006 klukkan 21:47
Jæja krakkar mínir!

Eins og þið vitið þá vill hugurinn oft reika þegar maður á að vera að lesa fyrir próf.. Þar sem að myndasíðan hér neitar að vera vinur minn skellti ég þeim bara inn á bloggið mitt. Síðan á myndunum er

http://www.blog.central.is/b/bigmama/index.php?page=albums&action=showalbum&id=14848


Allir að brjóta fætur og mjaðmir í prófunum!! Ullandi

Kv. Linda lærdómsfúsa
Útskriftarhópur FÁ Haust 2006

Dimmission yfirstaðin, próf að byrja.

26. nóvember 2006 klukkan 22:53
Jæja gott fólk.

Vill byrja á að þakka öllum kærlega fyrir góðan dag á föstudaginn, þetta var alveg frábær dagur. Ekkert á þessum deigi sem ég hefði viljað breyta. Við erum klárlega sá hópur sem við vildum í upphafi verða, sá hópur sem fólk mun núna nota sem fyrirmynd í dimmission í FÁ, við erum sá hópur sem verður erfitt að toppa og kennarar og annað starfsfólk skólans mun muna eftir.

Margir kennarar voru mjög sáttir við okkur. Allir voru mjög sáttir við framkomu okkar og get ég ekki annað sagt en að við höfum verið skólanum til sóma. Flestir voru sáttir með myndbandið og nokkrir kennarar sem sögðust ekki þurfa að hafa áhyggjur af áramótskaupinu í ár því ef það klikkaði þá væri myndbandið til á disk. Saklaus

Ég vill sérstaklega þakka Ernu fyrir að hafa verið sterkur formaður út önnina, Ingu fyrir að gera árbókina og tryggja það að þessi stund okkar saman mun ekki gleymast í bráð því þegar við opnum árbókina munum við örruglega öll rifja þennan dag upp og hlægja dátt. Einnig vill ég þakka Böbba kærlega fyrir samvinnuna í myndbandinu og öllum þeim sem léku í því. Fannar á stórt hrós skilið fyrir að halda fyrir okkur þetta fína morgun party. Allir aðrir í hópnum eiga líka hrós skilið fyrir að vera þáttur í þessum æðislega hóp, því án fólksins væri þetta varla hópur. Glottandi

Að lokum vill ég minna fólk á að allar myndir frá önninni og sérstaklega dimmission deiginum eru velkomnar á myndasíðuna.

Eftir próf getið þið átt von á að við kveðjum þennan skóla okkar sem hópur á Ölver eða Pentagon og mun það að öllum líkindum vera þann 15. des og vonum við að sem flestir mæta. Að lokum kveðjum við svo skólann í Háskólabíó þann 20. des.

Þakka kærlega fyrir samstarfið á önninni og samveruna. Óska öllum þess besta í prófum í í komandi framtíð.

kær kveðja
Gísli Steinn
Útskriftarhópur FÁ Haust 2006

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Er fílíngur fyrir ríjúníóni